Hvaða Hvaða

•ágúst 23, 2007 • Rita ummæli

Hvurslags alltaf hreint, heilt sumar liðið án bloggs!

Ástæða= tölvan mín krassaði (niður á blað nokkrar leiðinlegar athugasemdir um mig og ég er búin að vera í fýlu útí hana síðan)

En ég nenni ekki að skrifa á þessari síðu, nenni ekki að þurfa að logga mig inn og approva comment!!
-Nei Sigga mín ég er ekki að ritskoða þig, ég er bara löt;) 

Þess vegna mun ég halda áfram að skrifa á gömlu síðunni (black is back) http://www.blog.central.is/hnodrapuff
Þeas þegar ég hætti í vinnunni, kann ekki við að vera að blogga á vinnutíma….þó ég sé að því núna úps – farin

Stay nude,
Arna

hæ hó og jibbi jei

•júní 17, 2007 • 4 Ummæli

jibbí, það er kominn sautjándi júní.
Hjólatúr, miðbærinn og kaka hjá ömmu – hvað væri sautjándi júní án þessa?

Sumarið flýgur áfram, ég trúi ekki að júní sé meira en hálfnaður. Hver stjórnar eiginlega hraðanum á þessu leikriti? Hann má alveg fara að taka af FF!!

Brúðkaup númer tvö af þremur þetta sumarið sótt í gær, endalaus skemmtun og læti. Bíð spennt eftir næsta þar sem athöfnin á að fara fram utandyra, hugað í ljósi þess að við erum á íslandi;)

Öðruvísi vinnudagur á morgun, fæ frí í Actavis þar sem að ég er að fara að hjálpa til við SPSS keyrslur. Ég veit ekkert hversu flókið það verður og er því búin að sitja við í dag og skoða SPSS bókina mína – furðulegt hvað maður gleymir miklu á nokkrum mánuðum. Fyrir þá sem ekki vita þá er SPSS tölfræðiforrit sem notað er við úrvinnslu í alls kyns félagsvísinda rannsóknum. Fékk þessa vinnu í gegnum tölfræðikennarann í háskólanum. Hún spurði hvort ég væri síðan ekki til í að hjálpa aftur til í haust sem aðstoðarkennari sem ég þáði. Alltaf gott að vita að maður klúðraði ekki málunum án þess að maður vissi og enginn vildi fá mann aftur í vinnu;)

ííííííjú það er kveikt á Family Guy og hann Quagmire er algjör viðbjóður “…high school girls, I keep getting older but they stay the same age”

jibbí jei þessi færsla er búin

Það er af sem áður var

•júní 6, 2007 • 2 Ummæli

 

Það er enginn tími á þessu landi til að gera eitt né neitt, maður er ekki fyrr kominn úr vinnunni fyrr en maður þarf að rífa sig á fætur aftur…ein svekkt að vera kippt aftur í raunveruleikann eftir sprell í ævintýralandinu fyrirheitna;)

Fjórar vikur liðnar á ísalandinu og margt búið að gera, finnst eins og það séu alveg tveir mánuðir síðan ég kom. Fórum í brúðkaup síðasta laugardag og það er alltaf jafn gaman að gleðjast saman með fólki sem býður til veislu. Nú er ég búin að fara í þrjú brúðkaup hjá jafnöldrum og ekki er laust fyrir að maður sé að möndla smá dagskrá í hausnum á sér fyrir sína veislu í framtíðinni. Alltaf eitthvað sem maður sér sem maður ætlar ekki að gera og svo aðrar sniðugar hugmyndir sem hægt er að stela;) En hér kemur smá möndl úr hausnum á mér:
Ég ætla ekki að:
-Vera með slör
-Vera í hvítum kjól
-Gifta mig í kirkju
-Vera gift af presti
Nú hugsa sennilega margir “hvað ætlar hún þá að gera?” En það verður bara að koma í ljós en mér finnst brúðkaup alveg vera meira sniðin að persónulegum þörfum og áhuga, þessi dagur þarf ekki að vera skrifaður í stein…

Annars vorum við að koma úr mat hjá mömmu og pabba og var þar varpað fram þeirri hugmynd að fagna sextugsafmæli föður míns í haust með Barþelónaferð, pabbi er ekki mikið afmælisbarn og harneitar að halda afmælisveislu á afmælisdaginn sinn þó að hann fái skemmtilegustu dagsetningu sem til er 070707 til að halda uppá svona stór tímamót, ekki skemmir fyrir að hann er á laugardegi. En maður verður víst að virða óskir afmælisbarnsins. Við Gaui vorum þó ekki lengi að samþykkja fyrirhugaða Barþe-ferð og nú er bara að vona að Eiður og félagar eigi heimaleik þessa helgi svo hægt sé að fá bróðir minn með.

Fleira er ekki í fréttum í bili,
Lifið heil

•maí 28, 2007 • 1 ummæli

jiii voðalega er maður orðin merkilegur þegar maður þarf að samþykkja ummælin sem eru rituð á síðuna, já stjórnborðið mitt er á íslensku og hér á bæ er því notað “ummæli” en ekki “comment” haha. En ég er semsagt búin að samþykkja öll þau ummæli sem mér bárust og þakka fyrir þau, nei Sigga mín ég hef ekki fundið ástæðu (hingað til) til að ritskoða þig;)

Tása litla (kisan á gelgjuskeiðinu) er öll að koma til, dýralæknir fann það út að hún hafði verið bitin í hausinn og það var komið illt í sárið og því mikill þrýstingur á hausinn hennar, en hún er núna orðin eins og hún á að sér fyrir utan skallablett á hausnum;)

Er búin að eiga æðislega langa helgi, fyrri hlutanum eyddi ég sem grasekkja þar sem gaui var kvaddur í steggjaherinn og shipped to London. En þar sem ég hef haft smá æfingu undafarna mánuði í að skemmta mér ein þá var hverri mínútu vel varið….loksins gat ég horft á DeHo og fleiri góða vini;)

Rosalega er gaman að horfa á erlenda þætti um ísland, festist aðeins yfir stöð eitt þar sem verið er að sýna þátt frá nýfundnalandi um ísland. Kannski finnst mér bara svona gaman að þessu þar sem mér finnst að verið sé að gera þátt persónulega um mig;) Íslendingar taka öllu svo persónulega, kannski ekkert skrýtið þar sem við erum svo fá…

Ég ætla að eiga smá kveðjustund með DeHo og fleiri, sem minnir mig á að verið var að sýna lokaþáttinn í gær þannig að hann ætti að vera tilbúinn til niðurhals núna;) niðurhal haha já við erum íslensk hér á bæ.

arnan

afgreiðslubarn

•maí 23, 2007 • 3 Ummæli

Ég kom við í Krónunni á leiðinni heim úr vinnu í dag. Mér til mikilla ánægju hefur Krónan bæst í hóp þeirra matvöruverslana sem hafa grænt horn, þar sem hollt sérfæði er að finna en fyrir þá sem ekki vita stunda ég sérkennileg innkaup. Í miðju græna horninu rekst ég á hrísmjólk en þar sem ég er með mjólkuróþol nota ég hrís(grjóna)mjólk útá morgunkornið mitt. Venjulega í Nóatúni og Hagkaupum getur einn líter af slíkri mjólk slagað yfir fimmhundruð kallinn! Já það er ástæða fyrir því að ég bý enn í foreldrahúsum haha

En allaveg, þá fæst þessi sami líter á hundrað áttatíu og átta krónur í Bónus og ég gerði ráð fyrir að Krónan væri einnig með góðan díl, en þar sem engan verðmiða var að finna fyrir hrísmjólkina voru góð ráð dýr þar til að ég sá starfsmann Krónunnar ganga framhjá mér. Ég stoppaði kauða sem reyndist vera 7 ára smábarn og rétt skriðinn úr vöggu. Hann var með eindæmum óhjálplegur og eftir langa leit að verðmiðanum (í næstu hillum og svona) þá lýsti hann yfir að það væri enginn verðmiði….eitthvað sem ég hafði gert mér grein fyrir á meðan hann var enn á brjósti og var ástæðan fyrir að ég leitaði til hans í upphafi, en í stað þess að kvabba meira í honum ákvað ég að taka hann upp og lofa honum að ropa. Ég kvaddi kauða síðan með virktum og óskaði honum góðs gengis með leikskólaútskriftina.

Eftir að hafa gengið frá innkaupunum áttaði ég mig á því að köttinn minn hvar hvergi að sjá. Vanalega þegar ég renni upp innkeyrsluna bíður hún eftir mér mjálmandi á sig gat. Þetta fannst mér sérkennilegt, sérstaklega í ljósi þess að ég hafði keypt handa henni mat og ætlaði að fara að gefa henni þar sem hún er alltaf svöng. Ég hefði kannski átt að byrja á því að segja að hún var mjög skrýtin í gær þegar við komum heim og hún var inni. Eins og þeir sem til þekkja vita þá er þetta mest uppáþrengjandi köttur sem til er, hún fær aldrei nóg af ást hvernig sem henni er klappað og verð ég að segja að eggjastokka-klingi hefur verið fullnægt með því að sjá um hana;)

En í gærkveldi var annað hljóð í henni, hún stökk frá þegar við komum inn og vældi og stökk svo út. Ekki var þetta skárra áðan þegar ég fann hana loksins í garðstofunni hinum megin. Hún lá þar undir stól sem er mjög ólíkt henni og stökk svo út og burt frá mér þegar ég nálgaðist. Eftir að hafa reynt að gefa henni matinn og klóra henni með klóru þá gekk hún burt frá mér útí götu, fara kettir á gelgjuskeiðið?

jæja best að fara að sjóða fisk og herða hann svo og sjá hvort ég geti ekki lokkað hana inn

arnan

Palestínskur Pomeranian

•maí 21, 2007 • 2 Ummæli

Ég átti góða helgi, góóða helgi. Það jafnast ekkert á við 12 tíma svefn og 6 tíma mótorhjólaferð. Mér og Gaua var síðan boðið í mat til vinar Gaua. Þar sem hann er hálf-Palestínskur nýtti ég mér tækifærið og spurði hann spjörunum úr. Verð að viðurkenna að ég hef aldrei skilið þetta mál alveg til fulls. En með góðri fræðslu er ég nú öllu fróðari um mál Palestínu. Verð þó að segja að þetta er ekki fyrir human being að skilja, þessar aðstæður eru nú svo ótrúlega fjarlægar manni. Eftir fræðslu kvöldsins langaði mig helst að fleygja mér í grasið og klappa íslandinu mínu. Hversu heppinn var maður að fæðast hér?

En ísland hefur þann kost (á sumrin) að það er allt í lagi að vera að vinna þrettán tíma á dag og vera ekki að renna í hlaðið fyrr en klukkan hálf tíu að kveldi. Með sólina svona hátt á lofti mætti alveg segja manni að hún væri rétt að skríða yfir fimm. Hvar annars staðar í heiminum geturu farið í göngutúr í sólskini klukkan rúmlega tíu að kveldi? Jú kannski í Alaska, jú og á svalbarða og jú kannski líka….ok á nokkrum stöðum greinilega;)

Þegar ég kom heim í hverafoldina eftir kvöldgönguna beið mín þar lítill hundur, ég verð að viðurkenna að ég hef haft fordóma fyrir “litlum hundum”, finnst þeir ekki alveg vera hundar og skil ekki hvað er varið í þá. En þessi tiltekni litli hundur sem beið eftir mér í hverafoldinni hefur aldeilis fengið mig til að þykja annað. Ég veit ekki hvort hann er frábrugðinn öðrum litlum hundum eða hvort allir litlir hundar eru svona. Nú er ég búin að skrifa lítill hundur svolítið oft. En þessi litli hundur er semsagt fyllilega að standa undir hundsnafninu með gelti, bitum og beinanagi.

Nú er klukkan orðin margt,

arnan

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.