Palestínskur Pomeranian

Ég átti góða helgi, góóða helgi. Það jafnast ekkert á við 12 tíma svefn og 6 tíma mótorhjólaferð. Mér og Gaua var síðan boðið í mat til vinar Gaua. Þar sem hann er hálf-Palestínskur nýtti ég mér tækifærið og spurði hann spjörunum úr. Verð að viðurkenna að ég hef aldrei skilið þetta mál alveg til fulls. En með góðri fræðslu er ég nú öllu fróðari um mál Palestínu. Verð þó að segja að þetta er ekki fyrir human being að skilja, þessar aðstæður eru nú svo ótrúlega fjarlægar manni. Eftir fræðslu kvöldsins langaði mig helst að fleygja mér í grasið og klappa íslandinu mínu. Hversu heppinn var maður að fæðast hér?

En ísland hefur þann kost (á sumrin) að það er allt í lagi að vera að vinna þrettán tíma á dag og vera ekki að renna í hlaðið fyrr en klukkan hálf tíu að kveldi. Með sólina svona hátt á lofti mætti alveg segja manni að hún væri rétt að skríða yfir fimm. Hvar annars staðar í heiminum geturu farið í göngutúr í sólskini klukkan rúmlega tíu að kveldi? Jú kannski í Alaska, jú og á svalbarða og jú kannski líka….ok á nokkrum stöðum greinilega;)

Þegar ég kom heim í hverafoldina eftir kvöldgönguna beið mín þar lítill hundur, ég verð að viðurkenna að ég hef haft fordóma fyrir “litlum hundum”, finnst þeir ekki alveg vera hundar og skil ekki hvað er varið í þá. En þessi tiltekni litli hundur sem beið eftir mér í hverafoldinni hefur aldeilis fengið mig til að þykja annað. Ég veit ekki hvort hann er frábrugðinn öðrum litlum hundum eða hvort allir litlir hundar eru svona. Nú er ég búin að skrifa lítill hundur svolítið oft. En þessi litli hundur er semsagt fyllilega að standa undir hundsnafninu með gelti, bitum og beinanagi.

Nú er klukkan orðin margt,

arnan

~ af hnodrapuff á maí 21, 2007.

2 svör to “Palestínskur Pomeranian”

  1. Hver átti hundinn??

  2. ohhh pommeranian hundar eru algjört æði. ertu að passa hann?

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.