afgreiðslubarn
Ég kom við í Krónunni á leiðinni heim úr vinnu í dag. Mér til mikilla ánægju hefur Krónan bæst í hóp þeirra matvöruverslana sem hafa grænt horn, þar sem hollt sérfæði er að finna en fyrir þá sem ekki vita stunda ég sérkennileg innkaup. Í miðju græna horninu rekst ég á hrísmjólk en þar sem ég er með mjólkuróþol nota ég hrís(grjóna)mjólk útá morgunkornið mitt. Venjulega í Nóatúni og Hagkaupum getur einn líter af slíkri mjólk slagað yfir fimmhundruð kallinn! Já það er ástæða fyrir því að ég bý enn í foreldrahúsum haha
En allaveg, þá fæst þessi sami líter á hundrað áttatíu og átta krónur í Bónus og ég gerði ráð fyrir að Krónan væri einnig með góðan díl, en þar sem engan verðmiða var að finna fyrir hrísmjólkina voru góð ráð dýr þar til að ég sá starfsmann Krónunnar ganga framhjá mér. Ég stoppaði kauða sem reyndist vera 7 ára smábarn og rétt skriðinn úr vöggu. Hann var með eindæmum óhjálplegur og eftir langa leit að verðmiðanum (í næstu hillum og svona) þá lýsti hann yfir að það væri enginn verðmiði….eitthvað sem ég hafði gert mér grein fyrir á meðan hann var enn á brjósti og var ástæðan fyrir að ég leitaði til hans í upphafi, en í stað þess að kvabba meira í honum ákvað ég að taka hann upp og lofa honum að ropa. Ég kvaddi kauða síðan með virktum og óskaði honum góðs gengis með leikskólaútskriftina.
Eftir að hafa gengið frá innkaupunum áttaði ég mig á því að köttinn minn hvar hvergi að sjá. Vanalega þegar ég renni upp innkeyrsluna bíður hún eftir mér mjálmandi á sig gat. Þetta fannst mér sérkennilegt, sérstaklega í ljósi þess að ég hafði keypt handa henni mat og ætlaði að fara að gefa henni þar sem hún er alltaf svöng. Ég hefði kannski átt að byrja á því að segja að hún var mjög skrýtin í gær þegar við komum heim og hún var inni. Eins og þeir sem til þekkja vita þá er þetta mest uppáþrengjandi köttur sem til er, hún fær aldrei nóg af ást hvernig sem henni er klappað og verð ég að segja að eggjastokka-klingi hefur verið fullnægt með því að sjá um hana;)
En í gærkveldi var annað hljóð í henni, hún stökk frá þegar við komum inn og vældi og stökk svo út. Ekki var þetta skárra áðan þegar ég fann hana loksins í garðstofunni hinum megin. Hún lá þar undir stól sem er mjög ólíkt henni og stökk svo út og burt frá mér þegar ég nálgaðist. Eftir að hafa reynt að gefa henni matinn og klóra henni með klóru þá gekk hún burt frá mér útí götu, fara kettir á gelgjuskeiðið?
jæja best að fara að sjóða fisk og herða hann svo og sjá hvort ég geti ekki lokkað hana inn
arnan

helduru að hún sé nokkuð meidd..? Og af hverju kemur eins og það séu 0 comment þegar maður er búin að kommenta?
það er ekki hægt að commenta á þessa síðu. commentið mitt er alltaf farið, ertu að ritskoða mig arna?
Það afgreiddi mig einmitt strákur sem var ekki deginum eldri en 12 ára í Bónus um daginn. Ég hélt að svona ung börn mættu ekki sjá um peninga í verslun…hmmm…það var amk þannig þegar ég vann í verslun.
En með kisu, getur nokkuð verið að hún sé kettlingafull??? Eða þá að þetta sé fyrirtíðaspenna…hehe