Það er af sem áður var

 

Það er enginn tími á þessu landi til að gera eitt né neitt, maður er ekki fyrr kominn úr vinnunni fyrr en maður þarf að rífa sig á fætur aftur…ein svekkt að vera kippt aftur í raunveruleikann eftir sprell í ævintýralandinu fyrirheitna;)

Fjórar vikur liðnar á ísalandinu og margt búið að gera, finnst eins og það séu alveg tveir mánuðir síðan ég kom. Fórum í brúðkaup síðasta laugardag og það er alltaf jafn gaman að gleðjast saman með fólki sem býður til veislu. Nú er ég búin að fara í þrjú brúðkaup hjá jafnöldrum og ekki er laust fyrir að maður sé að möndla smá dagskrá í hausnum á sér fyrir sína veislu í framtíðinni. Alltaf eitthvað sem maður sér sem maður ætlar ekki að gera og svo aðrar sniðugar hugmyndir sem hægt er að stela;) En hér kemur smá möndl úr hausnum á mér:
Ég ætla ekki að:
-Vera með slör
-Vera í hvítum kjól
-Gifta mig í kirkju
-Vera gift af presti
Nú hugsa sennilega margir “hvað ætlar hún þá að gera?” En það verður bara að koma í ljós en mér finnst brúðkaup alveg vera meira sniðin að persónulegum þörfum og áhuga, þessi dagur þarf ekki að vera skrifaður í stein…

Annars vorum við að koma úr mat hjá mömmu og pabba og var þar varpað fram þeirri hugmynd að fagna sextugsafmæli föður míns í haust með Barþelónaferð, pabbi er ekki mikið afmælisbarn og harneitar að halda afmælisveislu á afmælisdaginn sinn þó að hann fái skemmtilegustu dagsetningu sem til er 070707 til að halda uppá svona stór tímamót, ekki skemmir fyrir að hann er á laugardegi. En maður verður víst að virða óskir afmælisbarnsins. Við Gaui vorum þó ekki lengi að samþykkja fyrirhugaða Barþe-ferð og nú er bara að vona að Eiður og félagar eigi heimaleik þessa helgi svo hægt sé að fá bróðir minn með.

Fleira er ekki í fréttum í bili,
Lifið heil

~ af hnodrapuff á júní 6, 2007.

2 svör to “Það er af sem áður var”

  1. Hvað er eiginlega með þessa pabba??? Pabbi minn vill heldur aldrei halda upp á afmælið sitt. Í vetur fórum við til Danmerkur til að fagna sextugsafmæli hans. En það var ekkert verra :D
    Hey ég ætla ekki heldur að vera með slör. Finnst það ekki passa mér eitthvað. En ég hugsa nú að ég vilji hvítan kjól, en hann verður ekki hefðbundinn. Er sko alveg búin að sjá hann fyrir mér :D

  2. ánægð með þig;) alltaf gaman að sjá persónulegar hliðar á þessum degi;)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.