hæ hó og jibbi jei
jibbí, það er kominn sautjándi júní.
Hjólatúr, miðbærinn og kaka hjá ömmu – hvað væri sautjándi júní án þessa?
Sumarið flýgur áfram, ég trúi ekki að júní sé meira en hálfnaður. Hver stjórnar eiginlega hraðanum á þessu leikriti? Hann má alveg fara að taka af FF!!
Brúðkaup númer tvö af þremur þetta sumarið sótt í gær, endalaus skemmtun og læti. Bíð spennt eftir næsta þar sem athöfnin á að fara fram utandyra, hugað í ljósi þess að við erum á íslandi;)
Öðruvísi vinnudagur á morgun, fæ frí í Actavis þar sem að ég er að fara að hjálpa til við SPSS keyrslur. Ég veit ekkert hversu flókið það verður og er því búin að sitja við í dag og skoða SPSS bókina mína – furðulegt hvað maður gleymir miklu á nokkrum mánuðum. Fyrir þá sem ekki vita þá er SPSS tölfræðiforrit sem notað er við úrvinnslu í alls kyns félagsvísinda rannsóknum. Fékk þessa vinnu í gegnum tölfræðikennarann í háskólanum. Hún spurði hvort ég væri síðan ekki til í að hjálpa aftur til í haust sem aðstoðarkennari sem ég þáði. Alltaf gott að vita að maður klúðraði ekki málunum án þess að maður vissi og enginn vildi fá mann aftur í vinnu;)
ííííííjú það er kveikt á Family Guy og hann Quagmire er algjör viðbjóður “…high school girls, I keep getting older but they stay the same age”
jibbí jei þessi færsla er búin

Hæhó.. Family guy er góður elska Stewie hann er bestur
) Hils Jóa spóa spíturass
Gott að heyra að vinnumálin gangi vel.
Vildi kvitta fyrir innlitið, hélt að þú værir bara alveg hætt að blogga en kíkti svo á gömlu síðuna og sá að svo var ekki veii..
Gangi þér vel í göngunni.. og farðu svo að blogga meira
jamm ég vil líka fá fleiri blogg eða fá þig á myspace, hitti nefnilega aldrei á þig á msn stelpa… hahah hvað maður er háður tækninni
Þessi setning frá quagmire er reyndar stolin. Hún er upphaflega úr myndinni Dazed and Confused, en þá var það ungur Matthew Maconnahey sem mælti þessi orð.